|
Article on other languages:
|
Kolefni er frumefni með efnatáknið C og er númer sex í lotukerfinu. Það er mjög algengur, fjórgildur, málmleysingi og er til í nokkrum mismunandi formum:
Fullerín (sem kennt er við Buckminster Fuller) er gert úr sameindum kolefnisatóma á nanómetrakvarða. Einfaldasta form þess er úr sameindum, sem eru þannig, að 60 kolefnisatóm eru tengd saman og mynda kúlu, sem að svipar til fótbolta. Þetta minnir á kúlu-einingahúsin, sem hönnuð voru af Buckminster Fuller á sínum tíma og þaðan kemur nafnið.
Glerkennt kolefni er jafnátt og sterkt sem gler. Ólíkt venjulegu grafíti eru grafísku lögin ekki hagrætt eins og blaðsíður í bók heldur eru þau krumpuð saman eins og pappír. Koltrefjaefni eru svipuð glerkenndu kolefni. Við sérstaka meðhöndlun (strekking á lífrænum trefjum sem svo eru kolaðar) er hægt að hagræða kolefnisflötunum í sömu stefnu og trefjarnar. Hornrétt á trefjaröxulinn vantar stefnu á kolefnafletina. Kolefni finnst í öllum lífrænum verum og er undistaða lífrænnar efnafræði. Þessi málmleysingi hefur einnig þann áhugaverða efnafræðilega eiginleika að geta bundist við sjálfan sig og margar tegundir annarra efna, og myndar þannig nærri 10 milljón þekkt efnasambönd. Sameinað við súrefni myndar það kolsýru sem að er lífsnauðsynleg fyrir gróður. Sameinað við súrefni og vetni getur það myndað mörg efnasambönd, þar á meðal fitusýrur sem að eru nauðsynlegar lífi, og estra, sem að gefa mörgum ávöxtum bragð sitt. Samsætan kolefni-14 er mikið notað við aldursákvörðun með geislakolum. Tengill
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.