|
Article on other languages:
|
Léttlest er járnbrautarlest, sem notuð er við almenningssamgöngur í borgum og í öðrum þéttbýlum svæðum. Léttlestarkerfi er einskonar millistig á milli sporvagns og snarlestar. Léttlestir bera oftast færri farþega en snarlestir og eru ekki eins hraðskreiðar, en þær eru aftur á móti hraðskreiðari og geta tekið fleiri farþega en sporvagnar. Ein sérstaða léttlesta er sú að þær geta bæði gengið á sér sporum aðskildar frá umferð og á spori ásamt umferð. Flestar léttlestir eru knúnar áfram með rafmagni en þó eru til lestir sem notast við Díselolíu. Samanburður við önnur lestarkerfi
|
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.